Get 3 audiobooks free with a 30-day Free Trial Sign Up Free
[Icelandic] - Fyrri konungabók

[Icelandic] - Fyrri konungabók

Author:
Biblían
Read Read Own Own
A free trial credit cannot be used on this title

Unabridged Audiobook

Ratings
Book
Narrator
Release Date
August 1, 2024
Duration
2 hours 39 minutes
Summary
Í Fyrri konungabók er haldið áfram frásögninni af konungdæmi Ísraels sem hófst í Samúelsbókum. Hún skiptist í þrjá meginhluta. (1) Upphaf konungdæmis Salómons og andlát Davíðs, föður hans. (2) Stjórnarár Salómons. Þar er áherslan einkum á byggingu musterisins. (3) Nýr klofningur ríkisins í Norður- og Suðurríki og frásögn af konungunum fram á miðja 9. öld f.Kr. Í báðum konungabókunum eru konungarnir dæmdir eftir afstöðunni til Drottins og laga hans. Sá sem brýtur gegn lögunum kallar bölvun yfir sig og þjóðina. Bókunum er ætlað að leiða í ljós að fall Ísraelsríkis var afleiðing af stjórnarstefnu konunganna. Inn í sögu þeirra er fléttað viðamiklum þáttum um líf og starf spámannanna Elía og Elísa og annarra guðsmanna (17.–19. kafli). Þeir vara þjóðina við skurðgoðadýrkun og óhlýðni við Drottin.

Skipting ritsins

1.1–2.12 Átök um konungdæmi Davíðs

2.13–2.46 Salómon festir sig í sessi

3.1–11.43 Stjórnarár Salómons konungs

12.1–22.53 Konungsríkin tvö

12.1–14.20 Konungdæmið klofnar

14.21–16.34 Konungar Júda og Ísraels

17.1–19.21 Elía spámaður

20.1–22.40 Stjórnarár Akabs og andlát

22.41–22.53 Jósafat Júdakonungur og Ahasía Ísraelskonungur
1 book added to cart
Subtotal
$2.00
View Cart