Get 3 audiobooks free with a 30-day Free Trial Sign Up Free
[Icelandic] - Hósea

[Icelandic] - Hósea

Author:
Biblían
Read Read Own Own
A free trial credit cannot be used on this title

Unabridged Audiobook

Ratings
Book
Narrator
Release Date
August 1, 2024
Duration
0 hours 39 minutes
Summary
Hósea starfaði í Norðurríkinu (Ísrael) skömmu á eftir Amosi. Þetta voru umbrotatímar fyrir fall Norðurríkisins og Samaríu. Hósea beindi spjótum sínum einkum að hjáguðadýrkun þjóðarinnar og sviksemi hennar við Drottin. Hann notaði hjónaband sitt sem líkingu og líkingamálið er fyrirferðarmikið í boðskap hans. Eins og hin ótrúa eiginkona hans hóraðist með friðlum sínum, þannig hafði þjóðin svikið Guð í tryggðum. Gagnrýni Hósea beindist einkum gegn rangri guðsdýrkun og dýrkun falskra guða, gegn konungdæminu og gegn bandalagi við erlendar þjóðir. Hósea boðaði dóm en hann horfði jafnframt fram til tímans eftir hörmungar dómsins. Þá mundi þjóðin bera gæfu til að leggja stund á sanna guðsdýrkun. Hann prédikaði að Guð krefðist miskunnsemi fremur en fórna.

Skipting ritsins

1.1–3.5 Hjónaband spámannsins

4.1–13.16 Ákæra á hendur Ísrael

14.1–14.9 Hvatning til iðrunar og afturhvarfs
1 book added to cart
Subtotal
$2.00
View Cart