Get 3 audiobooks free with a 30-day Free Trial
Sign Up Free
Loading...
Welcome
Sign up
Login
Browse Books
Deals
VIP
Gifts
0
Loading...
[Icelandic] - Matteusarguðspjall
Series:
#40 of Biblían - Heilög ritning
Author:
Biblían
Read by:
Kristján Franklín Magnús
Read
Read
Own
Own
A free trial credit cannot be used on this title
Unabridged Audiobook
Listen Now
as an Audiobooks.com member
Add to Cart - $2.00
Remove from Cart
Give as a gift
Ratings
Book
Narrator
Release Date
August 1, 2024
Duration
2 hours 41 minutes
Summary
Guðspjöllin voru skrifuð á síðari hluta fyrstu aldar, eða á árunum 60−95 e.Kr., og er Markúsarguðspjall þeirra elst. Í hverju guðspjalli er saga Jesú sögð frá mismunandi sjónarhornum og þau eru öll skrifuð fyrir mismunandi lesendahópa.
Matteusarguðspjall er ætlað gyðingkristnu fólki, þ.e. fólki sem áður var Gyðingar og bjó í gyðinglegu umhverfi. Það kemur best fram í því að Jesús er þar oft nefndur sonur Davíðs og ekki er talað um Guðs ríki heldur himnaríki en Gyðingar nefndu ekki Guðs nafn heldur notuðu hugtök eins og himininn er þeir töluðu um Guð. Matteusarguðspjall greinir frá fæðingu, lífi, krossfestingu og upprisu Jesú Krists og boðar að Jesús sé sá frelsari sem Guð hafi fyrir munn spámanna sinna heitið, ekki aðeins Gyðingum, heldur öllum heimi. Guðspjallið hefst á ættartölu Jesú og frásögn af fæðingu hans. Það sýnir Krist sem hinn mikla kennara og kennimann og safnar ræðum hans og kenningu í fimm bálka sem eru Fjallræðan (5.1−7.29), Sendingarræðan (10.5−10.42), dæmisögur um Guðs ríki (13.1−13.58), kenning um að vera lærisveinn (18.1−18.35) og kenning um endalok þessa heims, um hinn komandi heim og Guðs ríki (24.1−25.46). Guðspjallinu lýkur á frásögunni af krossfestingu Krists og upprisu. Tákn Matteusar guðspjallamanns í kirkjulegri list er maðurinn.
Skipting guðspjallsins
1.1−2.23 Ættartala, fæðing Jesú og flóttinn til Egyptalands
3.1−4.11 Prédikun Jóhannesar skírara, skírn Jesú og freisting
4.12−18.35 Starf Jesú í Galíleu
19.1−20.34 Ferð Jesú frá Galíleu upp til Jerúsalem
21.1−25.46 Starf Jesú í Jerúsalem
26.1−27.66 Pína Jesú, dauði og greftrun (píslarsaga Matteusar)
28.1−28.20 Upprisa Jesú
Browse By Category
Religion & Spirituality
>
Bibles & Biblical Studies
1 book added to cart
[Icelandic] - Matteusarguðspjall...
Biblían
Subtotal
$2.00
View Cart
Continue Browsing
~~title~~
Back
Next
~~carousel-body~~
~~book-title~~
~~author-single-string~~
~~tag-text~~
© Copyright 2011 - 2026 Storytel Audiobooks USA LLC. All Rights Reserved.