Get 3 audiobooks free with a 30-day Free Trial
Sign Up Free
Loading...
Welcome
Sign up
Login
Browse Books
Deals
VIP
Gifts
0
Loading...
[Icelandic] - Postulasagan
Series:
#44 of Biblían - Heilög ritning
Author:
Biblían
Read by:
Þóra Karítas Árnadóttir
Read
Read
Own
Own
A free trial credit cannot be used on this title
Unabridged Audiobook
Listen Now
as an Audiobooks.com member
Add to Cart - $2.00
Remove from Cart
Give as a gift
Ratings
Book
Narrator
Release Date
August 1, 2024
Duration
2 hours 46 minutes
Summary
Postulasagan er framhald Lúkasarguðspjalls og segir frá því hvernig fagnaðarerindið um hinn upprisna Drottin breiddist út frá Jerúsalem um Júdeu, til Samaríu og allt til endimarka jarðarinnar. Hún hefst með frásögn af uppstigningu Jesú og sendingu heilags anda á hvítasunnunni (2.1−2.13) og tengist þannig niðurlagi Lúkasarguðspjalls. Höfundurinn, Lúkas, var einn af samferðamönnum Páls og segir mest af ferðum hans en minna af ferðum annarra, svo sem Péturs. Hann segir frá lífi hins fyrsta kristna safnaðar og hvernig nýir söfnuðir voru stofnaðir í Landinu helga og síðan utan þess, í Antíokkíu, borgum Litlu-Asíu, Grikklandi og í sjálfri höfuðborg rómverska heimsveldisins. Höfundur hefur ekki haft heimildir um stofnun safnaða á öðrum stöðum, t.d. í Alexandríu, en gerir grein fyrir því hvernig Pétur sannfærðist að lokum um það að fagnaðarerindið skyldi boðað mönnum af öllum þjóðum og þeir skyldu undanþegnir boðum gyðingdóms um umskurn og hreina fæðu. Heimildir Lúkasar virðast hafa verið traustar og því hefur Postulasagan ótvírætt sögulegt gildi. Bókin er sennilega samin um 64 e.Kr. Postulasagan varðveitir heimildir um hina frumkristnu prédikun, þ.e. Péturs, Stefáns píslarvotts og Páls, og veitir þannig mikilsverða vitneskju um grundvöll kristinnar trúar og hver hin postullega boðun er. Bókin er öðru fremur vitnisburður um það hver sá kraftur var er gerði líf og útbreiðslu kristinnar trúar mögulega: kraftur heilags anda Guðs. Sami kraftur mótaði líf og starf Jesú á jarðvistardögum hans.
Skipting ritsins
1.1−1.5 Formálsorð höfundar
1.6−8.3 Upphaf kristinnar kirkju í Jerúsalem, deilur við Gyðinga
8.4−12.25 Fagnaðarerindið breiðist út frá Júdeu, heiðingjar taka kristna trú
13.1−20.38 Kristniboðsferðir Páls um Litlu-Asíu og til Evrópu
21.1−28.31 Handtaka Páls, fangelsun, flutningur til Rómar
Browse By Category
Religion & Spirituality
>
Bibles & Biblical Studies
1 book added to cart
[Icelandic] - Postulasagan...
Biblían
Subtotal
$2.00
View Cart
Continue Browsing
~~title~~
Back
Next
~~carousel-body~~
~~book-title~~
~~author-single-string~~
~~tag-text~~
© Copyright 2011 - 2026 Storytel Audiobooks USA LLC. All Rights Reserved.