Get 3 audiobooks free with a 30-day Free Trial
Sign Up Free
Loading...
Welcome
Sign up
Login
Browse Books
Deals
VIP
Gifts
0
Loading...
[Icelandic] - Rómverjabréfið
Series:
#45 of Biblían - Heilög ritning
Author:
Biblían
Read by:
Arnar Jónsson
Read
Read
Own
Own
A free trial credit cannot be used on this title
Unabridged Audiobook
Listen Now
as an Audiobooks.com member
Add to Cart - $2.00
Remove from Cart
Give as a gift
Ratings
Book
Narrator
Release Date
August 1, 2024
Duration
1 hour 17 minutes
Summary
Rómverjabréfið er sendibréf, eins konar umburðarbréf sem Páll postuli sendi hinum kristna söfnuði í höfuðborg rómverska ríkisins er hann var á leið þangað veturinn 57−58. Hvergi hefur Páll gert fyllri grein fyrir kenningu sinni en einmitt í Rómverjabréfinu og er bréfið því efnismikið og þrungið krafti mikillar sannfæringar. Eins og önnur bréf Páls skiptist það í kenningarlegan hluta annars vegar og hvatningarhluta hins vegar.
Páll er söfnuðinum ókunnugur nema af afspurn þar sem hann er ekki stofnandi hans. Hann hefur haft spurnir af því að mönnum sé ekki að fullu ljóst samband gyðingdóms og kristindóms og spenna ríki milli gyðingkristinna og heiðinkristinna í Róm. Því snýst bréfið að verulegu leyti um höfuðatriði gyðingdóms: réttlætinguna af trúfesti við lögmálið. Gegn þeirri kenningu setur Páll fram kenninguna um réttlætinguna af trúnni einni saman fyrir náð Guðs. Þá kenningu sækir hann í Biblíu frumkirkjunnar, Gamla testamentið, er hann túlkar í ljósi Krists. Páll boðar hér nýtt samband við Guð í persónu Jesú Krists er hinn trúaði hefur verið leystur undan valdi dauðans og hins illa með krafti heilags anda í lífi sínu, hinu nýja lífi í Kristi. Í niðurlagsköflum bréfsins, hvatningarhlutanum, fjallar Páll um þá þýðingu sem hið nýja líf andans hafi fyrir samlíf manna og leggur áherslu á kærleikann og ábyrgð kristins manns.
Skipting bréfsins
1.1−1.17 Inngangur, tilgangur bréfsins skýrður
1.18−11.36 Kenningarlegur hluti bréfsins
1.18−5.21 Hjálpræði boðast öllum mönnum sakir náðar Guðs
6.1−8.39 Hið nýja líf í trúnni á Krist og krafti heilags anda
9.1−11.36 Afstaða til Gyðinga
12.1−16.27 Hvatningarhluti bréfsins
12.1−15.13 Ávextir trúarinnar í nýju lífi
15.14−16.27 Fyrirætlanir Páls, kveðjur og blessunarbænir
Browse By Category
Religion & Spirituality
>
Bibles & Biblical Studies
1 book added to cart
[Icelandic] - Rómverjabréfið...
Biblían
Subtotal
$2.00
View Cart
Continue Browsing
~~title~~
Back
Next
~~carousel-body~~
~~book-title~~
~~author-single-string~~
~~tag-text~~
© Copyright 2011 - 2026 Storytel Audiobooks USA LLC. All Rights Reserved.